Færsluflokkur: Sjónvarp

Er fyndið að fólk fái sér aukavinnu í þessari óðaverðbólgu?

Starfsmaður RIÓ TINTÓ hefur haft að aukavinnu að lesa fréttir um helgar

 "Ef satt reynist væri ég afskaplega ósáttur. Og þætti þetta slæmt," segir Óðinn Jónsson fréttastjóri útvarps. Jón Hannes Stefánsson er starfsmaður RÚV – útvarpssviðs, og þykir með betri þulum sem fram hefur komið á seinni árum.

Það fengu útvarpshlustendur til dæmis að heyra þegar Jón Hannes las fjögur-fréttir á laugardag síðastliðinn en þá lesa starfsmenn útvarpssviðs sem ekki tilheyra fréttadeildinni fréttirnar. Hins vegar hnykkti glöggum og gagnrýnum við því Jón Hannes er jafnframt starfsmaður markaðsdeildar Alcan eða Rio Tinto Alcan í Straumsvík. "

Að semja til fjögura ára og geta sig hvergi hreyft er skandall? Að vera fangi verkalýðshreifingrinnar er ekki gott?  Í óðaverðbólgunni hafa þeir sem hafa ábyrgð og aldrei notið launaskriðs fengið aðeins um 15.000 kr á mánuði.  Þess vegna tel ég eðlilegt að Jón fái sér aukavinnu til að drýgja tekjunar.  Kannski að ég fari eftir Jóni og fái mér aukavinnu þar sem  sem ekki er hægt að éta það sem úti frýs og samningar til fjögra ára hlægilegir. Devil


Jón Bjarnason hefur miklar áhyggjur af auglýsingar herferð Alcoa eftir fólki.

Sá ágæti maður Jón Bjarnason alþingismaður hefur áhyggjur af ALCOA samkvæmt bloggsíðu sinni. Hvers vegna er ALCOA á Reyðarfirði alltaf að auglýsa eftir fólki spyr Jón?

Það er einfallt að rökstyðja það?  Alcoa býður fólki allt of lág laun?  Að bjóða góðu fólki aðeins 315.000 kr á mánuði brúttó laun með öllu í þessari óða verðbólgu er bara hlægilegt að mínu mati.  Vinna í álveri á að vera vel borguð og var lengst framan af tengd við alþingislaun.  hjá ALCOA Virðist lítið vera um gulrót eða starfsaldurs hækkanir fyrir góða starfsmenn.  Ég hef alla vega ekki séð það?  mig minnir að fyrir ári síðan buðu ALCOA menn sömu 315.000 krónunar í laun. 

Það er víða orðinn órói vegna óðaverðbólgu sem siglir eins og stórflóð yfir þjóð okkar.  Margir starfsmenn annara álfyrirtækja bíða eftir kjarasamningum og vilja fá eitthvað af launaskriðinu sem margir aðrir hópar hafa fengið á síðustu árum.  En þess skal geta að gott samkomulag hefur ávalt verið á milli starfsmanna og fyrirtækja í álrekstri um að semja til langs tíma þannig að friður sé með þróun fyrirtækisins.

Alcan er brautryðjandi á álmarkaðinum á Íslandi í dag og er árangurinn á öllum sviðum kraftarverk.  Þótt óðaverðbólgan sé að éta  lífsafkomu álmanna niður þá standa menn eftir og hreifa sig hvergi hjá góðum álfyrirtækjum. 

Kjarsamningar verða erfiðir hjá rótgrónasta álfyrirtækinu á Íslandi í haust.  Fólkið sem vinnur þar hefur gert það fremst meðal jafningja á heimsvísu.  Þetta gamla fyrirtæki hefur haldið vel á sínu fólki og er all stór hópur sem alltaf bíður fyrir utan hliðs eftir vinnu.

ALCOA býður fólki allt of lág laun þess vegna vill enginn vinna þar?  Sjálfur bíð ég eftir samningum og það er það alveg á hreinu að ég vil laun miðað við mitt framtak eins og aðrir starfsmenn annars fara menn eitthvað annað eða til Danmerkur.

 


Ingibjörg Sólrún á að slíta stjórnarstarfinu eða efna loforð sín? Það er krafa að hlustað sé á vilja þjóðarinnar?

Heldur Ingibjörg að Íslendingar séu fífl?

Fréttamenn ég krefst af ykkur hvort þið ætlið ekki að fá út úr frú Ingibjörgu hvort eftirlaunafrumvarpið verði ekki endurskoðað fyrir þinglok.

Fær Ingibjörg að koma svona fram við þjóð sína og svíkja hana án þess að stuna um eftirlaunamálin komi frá henni?

Í dag samkvæmt DV, þá fékk okkar ágæti Seðlabankastjóri lottóvinning eða aðeins 600.000 kr á mánuði í viðbótarlaun og aðrir ráðamenn líka eitthvað?

 Ingibjörg og Geir það er krafa að hlustað sé á vilja þjóðrinnar.

Það mætti ætla að ein þjóð byggi í Alþingishúsinu ásamt sínum ofur vinum og við smælingjarnir annarsstaðar og barðir niður ef við höfum eitthvað að segja? 

Ingibjörg verður að rísa upp og standa við sín loforð þannig að hún haldi trúverðuleikanum sínum en aðeins eru um 30 dagar til þingloka?

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband