Íslendingar eiga að nota drifkraftinn sinn í að efla eigin heilsu!

Á vormánuðum 2008 var ég 115 kg.  Ég vissi þá að þjóðin færðist ört í baráttuna um það að eigna sér titilinn feitasta þjóð heimsins.

Ég ákvað að gera eitthvað í mínum málum og fór að labba síðan að jogga á milli ljósastaura,hlaupa og að taka þátt í keppnum.

Þetta hefur bara gengið glymrandi vel og hef ég tekið þátt í tveimur hálfmaraþon hlaupum og 5 maraþon hlaupum og er stefnan tekin á París næstkomandi 15 apríl.

Á þessum tíma hafa margir vinir og kunningjar breytt sínum lífstíl og finnst mér það alltaf gleðilegur viðburður þegar ég sé ólíklegasta fólk reima á sig skónna og gera eitthvað í sínum málum.  Við íslendingar höfum drifkraftinn og getum allt ef við viljum það!

 

Ég vona að árið 2012 muni verða gæfu ár okkar íslendinga.


Hagsmunir Íslendinga framyfir hagsmunum sérhagsmunaaflana!

það er skrítið að búa í landi þar sem stjórnvöld hafa enga virðingu almennings!  Samkvæmt síðustu könnun þá er virðing Alþingis niður í kjallara, 13% landsmanna eru ánægð með stjórnvöld og 7% með stjórnarandstöðuna.

Reiði almennings er mikil enda óréttlætið látið bitna á hinum venjulega þjóðfélagsþegni eins og skotið sé úr hryðskota byssu.  Afskrifað er hægri vinstri hjá útvöldum sem fóru óvarðlega í falsgóðærinu meðan ráðdeildar fólkið sem aldrei tók þátt í svikamillunni er sagt að það eigi að borga sukkið!

Nýju bankarnir fengu lánasöfnin úr gömlu bönkunum á 40% virði samt er ráðdeildar fólkið sem alltaf stendur í skilum þótt það eigi ekki fyrir mat krafið um að það skuli borga stökkbreyttu lánin sín um 100% .

Bankarnir hafa gjörsamlega ofboðið siðferðisvitund hins almenna neytanda og  er traust okkar landsmanna gagnvart þessum kennitöluflökkurum stofnunum algjörlega niður í kjallara.  Yfirstjórn bankanna hafa tekið upp aðalinn og eru farin að borga sér laun eins og gamli aðallinn gerði!

Nú hefur þjóðin eða allir þeir sem komast ákveðið að hittast við setningu Alþingis.  Þar mun þjóðin mótmæla því að spillingin heldur áfram að grassera og aðallinn heldur áfram að taka stóran bita af kökunni meðan þjóðinni blæðir og hirðir molana!

Ísland berst fyrir frelsi úr ánauð sérhagsmunaaflana.  Áfram íslenska þjóðin!


Eru sérfræðingarnir þeir sömu og sungu útrásar sönginn?

Hvers vegna er það ekki gefið upp hvaða sérfræðingar það eru sem gefa þessu frumvarpi falleinkun.  Meðan svo er þá er ekki hægt að kalla þetta álit annað en einn enn áróðurinn!

Við íslendingar erum löngu búnir að fá nóg af sérhagsmuna áróðri sem gerði ekkert annað en að koma þjóðinni á hausinn þótt undirritaður ásamt fleiri mætum mönnum hafi varað stjórnvöld síðustu áratuga í hvert stefndi að óbreyttu

Þess vegna spyr þjóðin?  Hverjir eru þessir sérfræðingar?  Eru það kannski þeir sömu og hrópuðu útrásar sönginn með Hannes Hólmstein í fararbroddi.


mbl.is „Frumvarpið fær falleinkunn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra frumvarpið er byrjunin af leiðinni í réttlætis átt.

Ekkert múður!  Breyta kvótakerfinu á réttlátan hátt þannig að maður þurfi ekki að horfa upp á þessi ósköp eins og síðustu 30 árin með óbragð í munni.  Ég tel að þjóðin vilji frekar græða aðeins minna en að örfáir menn arðræni auðlindina og braski með sjáfarránið í óskildum rekstri eins og gert hefur verið síðustu áratugina. 

Ég styð af heilum hug aðgerðir ríkisstjórnarinnar í stóra frumvarpinu þótt það sé aðeins brot af því réttlæti að auðlindin fari aftur til þjóðarinnar.


mbl.is Aukinn kostnaður á útgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég trúi á sjálfan mig og mér er sama þótt enginn annar geri það og hef ég alltaf fundið fyrir því!

Ég hef svo gaman af því þegar fólk trúir ekki á getu manns og heldur að maður sé bara froðusnakkur.  Slíka tilfinningu fékk ég þegar ég ákvað að taka af mér 35 kg og gerast hálf marþonhlaupari.  Síðan gerðist ég Maraþonhlaupari og tók tvö slík á 12 daga millibili.  Nú er stefnan sett á 100 km hlaup og ég stefni enn og aftur á þá þraut að sigra sjálfan mig þótt allir hafi haldið að ég væri froðusnakkur og grobbhani sem einugis væri í nösunum á viðkomandi.

Ég hef haft rosalega gaman af hvernig margir af mínum starfsfélögum hafa brugðist við! Sumir hafa haldið mig geðveikan, sumir að þetta væri ekki hægt, fólk hefur varla getað horft framan í mig.  En ég mun halda áfram og gera mitt besta að vera framúrskarandi og taka áskorunum óhræddur og spekúlera hvernig maður kemst í gegnum markmiðin.

 Nú er 100 km hlaup á næsta leiti hjá mér.  Enginn hefur trú á því að fyrrverandi fitubolla 120 kg fyrir 3 árum nái  þeim markmiðum sínum að sigra sjálfan sig en ég veit að að ég get ,ég veit og ég ,skal.  Síðan munu enn erfaðari áskoranir verða á mínum vegi á næstu árum ef heilsan verður svona frábær eins og hún er í dag þótt fólk haldi mig áfram ruglaðan ha ha.


Mun þjóðin standast heilaþvott stjórnmálamanna sem viðgengist hefur hér í einn og hálfan áratug.

Ef ég segði JÁ við Icesave þá myndi ég vilja óbreytta græðgisvæðingu og óbreytt Ísland.  Ef ég segði NEI viðIcesave þá vildi ég samheldna þjóð og glænýtt Ísland þar sem frelsi,jafnrétti og bræðralag  ríkti.  Ég er búinn að ákveða mig!

 Forkálfar ASÍ OG SA berjast fyrir óréttlætinu.  Þessir menn berjast fyrir því að kökunni verði skipt eins og forðum og að almúginn fái að hirða molana af kökunni.  Hvar er hið nýja Ísland sem þessi ríkisstjórn lofaði?  Sömu menn, sama stjórnskipulag, sama óréttlætið sama allt.  Það breytist ekkert þar sem vald Alþingis er löngu komið til þeirra sem raunverulega stjórna Íslandi.  Ef fólk trúir þessum áróðri að Já sé besta leiðin fyrir Ísland þá mun óbreytt kerfi viðhalda sér til langs tíma.

Ég vil nýtt Ísland.  Ef við segjum JÁ á næsta Laugardag þá munum við viðhalda gamla Íslandi í allt of mörg ár eða um tvær kynslóðir.  Ef við segjum NEI þá munum við rísa hratt upp úr rústum kerfisins og stjórnsýslan tekur við sér eftir kjaftshögg og við munum lifa hér sem ein þjóð í sambandi við frelsi ,jafnrétti og bræðralag.

Er ekki nóg komið af rugli og heilaþvotti stjórnmálaaflanna.  Ég segi stórt NEI.


mbl.is Margir hafa kosið um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég segi stórt Nei. Læt ekki hræðsluáróður trufla mig........................

Búinn að taka ákvörðun og mitt svar er stórt Nei.  Kem með rökstuðning síðar............................


mbl.is Mjótt á mununum um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já það er orðið bjart til kl átta.

Okkur var lofað að taka ætti á spillingunni en það er öðru nær hver spillingarfurstinn rekur uppi hér og þar um alla stjórnsýsluna.

Steingrímur og Jóhanna nú er komið að ögurstundu,hvar er þetta spillingarlausa Ísland sem þið lofuðu landsmönnum?


mbl.is Merki um að tekið sé að birta til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2.700 km farnir á síðasta ári.

Samkvæmt dagbókinni minni á hlaup.com hljóp ég 2.700 km á síðasta ári.  Þessar æfingar eru að skila sér vel þar sem hraðinn og styrkurinn eykst með hverjum mánuðinum sem líður.  Til að geta æft þetta mikið þarf maður alltaf að skipuleggja sig aðeins fram í tíman vegna vinnu og annara skyldustarfa. 

Til að geta æft enn meira hef ég tekið upp á því að hlaupa í vinnuna nánast alltaf sama hvernig veðrið er og finnst mér það gefa mér heilmikinn styrk að brjótast áfram gegn vindinum.  

Mjög spennandi tímar framundan hjá okkur bræðrum þegar við förum í hlaupaprófin okkar í apríl og júni þar sem þessi skemmtilegi tími erfiðisins verður skjalfestur.


London 17 apríl og Reykjavík 11 júní

Æfingar hafa gengið frábærlega hjá okkur bræðrum og erum við mun sterkari núna en á sama tíma í fyrra á hlaupasvellinu.  Við höfum sett okkur tvö markmið sem við æfum grimmt fyrir það er London maraþonið þann 17 apríl næstkomandi og 100 km hlaupið í Reykjavík þann 11 júní í ár.

Í London er það markmið okkar að rúlla okkur í mark á tíma milli 3.15 og 3.30 og bæta tíma okkar verulega.  Í Reykjavíkur 100 km hlaupinu er markmiðið að komast í mark innan tíma marka sem eru um 13 klukkustundir.

Það sem hefur breyst frá því við vorum í Hamborg fyrir ári síðan er að elsti bróðir okkar hefur smitast af hlaupabakteríunni.  Hann æfir vel um þessar mundir og stefnir á að fara með okkur út til London, taka þátt í hlaupinu og komast í mark.

Skemmtilegir og ögrandi tímar framundan sem okkur hlakkar mikið til að takast á við.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband