Færsluflokkur: Vefurinn

Bjarni Ármansson tók miljarða út úr Glitni?

Lárus Welding fékk 300 miljónir fyrir það eitt að hefja störf í bankanum fyrir utan tuga miljóna sem hann hefur í árslaun og kaupréttar.

Þorsteinn Baldvinsson hinn ágæti maður var hálf klökkur í sjónvarpsviðtali í kvöld enda tók hann við slæmu búi og ætlaði sér alltaf að horfa í framspegilinn en skaðann var orðinn það stór.

Nú er ríkið búið að sýna fordæmi? Hvernig ætla þeir að bjarga þúsundum heimila sem þurfa að búa við okurvexti og sjá ekki fram úr einu eða neinu?

Miðað við hvernig æðstu stjórnendur hafa misnotað kaupréttasamninga þá verður að setja einhver lög um þessa samninga.

Þessir karlar í teinóttu jakkafötunum eru ekki eins klárir eins og þeir segja sjálfir.

Nú skora ég á Geir að hunsa andfélagssinnana og gera allt til að hægt verði að byggja upp fyrirtæki sem koma með gjaldeyrir inn í landið. Þessi fjármála óráðsíu fyrirtæki eru ekki þau fyrirtæki sem skapa gjaldeyrir.

Hinn sauðsvarti almenningur sá að þessi aðferðafræði mannanna í teinóttu jakkafötunum gat engan veginn gengið þótt þeir sem stjórna landinu sáu það ekki.

Síðan skora ég á Geir að vera harður og finna allar leiðir til að Ísland búi við stöðuleika og styðja þau fyrirtæki sem afla gjaldeyris eins og sjávarútveginn og álfyrirtækin. Forsætisráðherra má ekki láta andfélagssinna hafa þessi áhrif á sig þar sem það er útilokað að þóknast allri þjóðinni og sérstaklega þeirra sem nenna að vinna og skapa gjaldeyris.


mbl.is Ríkið eignast 75% í Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru alþingismenn eins og skjaldbakan í þessu máli?

Það er ótrúlegur hæga gangur í þessu máli ef annað borð á að vinna í réttlætinu.

Í mínum huga sé ég ekkert að því að breytingarnar falli í þá átt að þeir sem hafa þegið eftirlaun ofan á laun eftir að þessi ólög voru sett á greiði til baka.  Nákvæmlega eins og öryrkjar og aldraðir gegnum árin þegar þeir hafa fengið ofgreitt.

Annars skora ég á ráðamenn að vinna hratt í þessu máli.  Þeir hafa sýnt það í mörgum málum að þeir geta það.Smile


mbl.is Mistök gerð við setningu eftirlaunalaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álver í Helguvík mun bjarga íslensku þjóðlífi frá hrunadansi?

Nú eru reyknesingar komnir í gírinn og byrjað skal á fullu  að vinna við uppbyggingu álvers í Helguvík sem á að hefja starfsemi sína árið 2010.

Tímasetningin á byggingu álversins er góð þar sem íslenskt efnahagslíf er að stefna mjög langt í dífu.  Þessi framkvæmd mun lágmarka skaðan og efnahag fólks.

Til hamingju reyknesingar sem tóku gullið frá okkur hafnfirðingum.

Ég játa það að það er mjög skrítið að búa í Hafnarfirði og skil ég oft ekki þá leið sem stjórna bænum eru að fara?Bandit

Enda er óþolandi að þurfa að borga tug þúsunda í auka skatta á hverju ári sem segir að bæjarfélagið er á barmi.............................?


það á ekki að hugsa um Sundabraut núna?

Bensínlíterinn er að hækka og verður líklegast kominn á þriðja hundrað krónur eftir einhverja mánuði. Ríkið og borg á að draga saman á þessum tímapúnkti og sýna aðhald. Það besta fyrir þjóðina væri að hefja framkvæmdir í Helguvík eða á Bakka við Húsavík.

Hægja verður á öllum opinberum framkvæmdum og líka við hið svokallaða tónlistarhús.

Ráðamenn verða að hætta að ögra þjóðinni þannig að þjóðarsátt náist um leiðir í efnahagsmálum, þá á ég sérstaklega við eftirlaun ráðamanna og mannréttindamálið sem snýr að sjómönnum.

Síðan skora ég á Geir að hífa upp um sig belti og axlarbönd og fara að koma með eitthvað sem snýr að bjartsýnni þjóðarinnar í efnahagsmálum


mbl.is Opinn fundur um Sundabraut í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fyndið að fólk fái sér aukavinnu í þessari óðaverðbólgu?

Starfsmaður RIÓ TINTÓ hefur haft að aukavinnu að lesa fréttir um helgar

 "Ef satt reynist væri ég afskaplega ósáttur. Og þætti þetta slæmt," segir Óðinn Jónsson fréttastjóri útvarps. Jón Hannes Stefánsson er starfsmaður RÚV – útvarpssviðs, og þykir með betri þulum sem fram hefur komið á seinni árum.

Það fengu útvarpshlustendur til dæmis að heyra þegar Jón Hannes las fjögur-fréttir á laugardag síðastliðinn en þá lesa starfsmenn útvarpssviðs sem ekki tilheyra fréttadeildinni fréttirnar. Hins vegar hnykkti glöggum og gagnrýnum við því Jón Hannes er jafnframt starfsmaður markaðsdeildar Alcan eða Rio Tinto Alcan í Straumsvík. "

Að semja til fjögura ára og geta sig hvergi hreyft er skandall? Að vera fangi verkalýðshreifingrinnar er ekki gott?  Í óðaverðbólgunni hafa þeir sem hafa ábyrgð og aldrei notið launaskriðs fengið aðeins um 15.000 kr á mánuði.  Þess vegna tel ég eðlilegt að Jón fái sér aukavinnu til að drýgja tekjunar.  Kannski að ég fari eftir Jóni og fái mér aukavinnu þar sem  sem ekki er hægt að éta það sem úti frýs og samningar til fjögra ára hlægilegir. Devil


Jón Bjarnason hefur miklar áhyggjur af auglýsingar herferð Alcoa eftir fólki.

Sá ágæti maður Jón Bjarnason alþingismaður hefur áhyggjur af ALCOA samkvæmt bloggsíðu sinni. Hvers vegna er ALCOA á Reyðarfirði alltaf að auglýsa eftir fólki spyr Jón?

Það er einfallt að rökstyðja það?  Alcoa býður fólki allt of lág laun?  Að bjóða góðu fólki aðeins 315.000 kr á mánuði brúttó laun með öllu í þessari óða verðbólgu er bara hlægilegt að mínu mati.  Vinna í álveri á að vera vel borguð og var lengst framan af tengd við alþingislaun.  hjá ALCOA Virðist lítið vera um gulrót eða starfsaldurs hækkanir fyrir góða starfsmenn.  Ég hef alla vega ekki séð það?  mig minnir að fyrir ári síðan buðu ALCOA menn sömu 315.000 krónunar í laun. 

Það er víða orðinn órói vegna óðaverðbólgu sem siglir eins og stórflóð yfir þjóð okkar.  Margir starfsmenn annara álfyrirtækja bíða eftir kjarasamningum og vilja fá eitthvað af launaskriðinu sem margir aðrir hópar hafa fengið á síðustu árum.  En þess skal geta að gott samkomulag hefur ávalt verið á milli starfsmanna og fyrirtækja í álrekstri um að semja til langs tíma þannig að friður sé með þróun fyrirtækisins.

Alcan er brautryðjandi á álmarkaðinum á Íslandi í dag og er árangurinn á öllum sviðum kraftarverk.  Þótt óðaverðbólgan sé að éta  lífsafkomu álmanna niður þá standa menn eftir og hreifa sig hvergi hjá góðum álfyrirtækjum. 

Kjarsamningar verða erfiðir hjá rótgrónasta álfyrirtækinu á Íslandi í haust.  Fólkið sem vinnur þar hefur gert það fremst meðal jafningja á heimsvísu.  Þetta gamla fyrirtæki hefur haldið vel á sínu fólki og er all stór hópur sem alltaf bíður fyrir utan hliðs eftir vinnu.

ALCOA býður fólki allt of lág laun þess vegna vill enginn vinna þar?  Sjálfur bíð ég eftir samningum og það er það alveg á hreinu að ég vil laun miðað við mitt framtak eins og aðrir starfsmenn annars fara menn eitthvað annað eða til Danmerkur.

 


Ingibjörg Sólrún á að slíta stjórnarstarfinu eða efna loforð sín? Það er krafa að hlustað sé á vilja þjóðarinnar?

Heldur Ingibjörg að Íslendingar séu fífl?

Fréttamenn ég krefst af ykkur hvort þið ætlið ekki að fá út úr frú Ingibjörgu hvort eftirlaunafrumvarpið verði ekki endurskoðað fyrir þinglok.

Fær Ingibjörg að koma svona fram við þjóð sína og svíkja hana án þess að stuna um eftirlaunamálin komi frá henni?

Í dag samkvæmt DV, þá fékk okkar ágæti Seðlabankastjóri lottóvinning eða aðeins 600.000 kr á mánuði í viðbótarlaun og aðrir ráðamenn líka eitthvað?

 Ingibjörg og Geir það er krafa að hlustað sé á vilja þjóðrinnar.

Það mætti ætla að ein þjóð byggi í Alþingishúsinu ásamt sínum ofur vinum og við smælingjarnir annarsstaðar og barðir niður ef við höfum eitthvað að segja? 

Ingibjörg verður að rísa upp og standa við sín loforð þannig að hún haldi trúverðuleikanum sínum en aðeins eru um 30 dagar til þingloka?

 

 


Bensínlítirinn stefnir yfir 200 krónur? Er kreppa framundan?

Mætur og orðvar maður sagði mér um daginn að það kæmi sér ekki á óvart að bensínlítirinn færi yfir tvöhundruð krónur í haust miðað við það hvernig hann sér stöðuna.

Það er alveg á hreinu að lána sukk góðærið er liðið.  Við erum farin að sjá skammtíma samninga sem er ávísun á stórfelda hækkun launa og verðlags sem er samnefnari á óða verðbólgu sem ókleyft er að ganga út úr nema einhvers konar þjóðarsátt náist sem fyrst.

Þetta er mikið sjokk fyrir þjóðina og þá sérstaklega unga fólkið sem aldrei hefur upplifað kreppu en það er mitt mat að hún er á blússandi siglingu inn í okkar þjóðlíf.

Sjálfur hef ég undirbúið mig vel fyrir kreppuna og tekið lítinn þátt í lánafylliríinu þannig að ég ætti að þola vel í tvö til þrju mögur þokkaleg ár.

Í kreppu þá hægist mjög á hjólum atvinnulífsins og keðjuverkun fer á stað?  mörg fyrirtæki fara á hausinn þar sem fólk hættir viðskiptum vegna minna fjármagns.  T.d versla ég allar mínar matvörur í dag hjá Krónunni eða Bónus en mun lágmarka viðskipti mín við dýrari matvöruverslanir.  Einnig tel ég líklegt að ég muni segja upp áskriftum á Morgunblaðinu og hjá ljósvakafjölmiðlum stöðvar 2.  En ég er neyddur til að vera áskrifandi af RUV nema ég hendi sjónvörpunum eins fáránlegt og það er.  En í mínum huga er það nauðungaráskrift sem er fáránleg að mínu mati og viss nauðgun upp á þjóðina.

Nú ætti ríkisstjórnin sem hefur verið afskaplega aðgerðalítil það sem af er að koma til móts við unga fólkið og kenna þeim að lifa af kreppu eða blása lífi og von um að þetta sé aðeins skammvin kreppa og enginn þurfi að hafa áhyggjur.

Í dag sé ég ekkert sem ríkisstjórnin gerir til að blása lífi í þjóðina en vona það besta.


mbl.is Skeljungur hækkar eldsneytisverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband