Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ég deili áhyggjum mínum með Heilbrigðisráðherranum.

Það sem þessa ríkisstjórn vantar er framtíðarsýn og láta verkin tala.  Það er óþolandi fyrir almenning mánuð eftir mánuð að horfa upp á aðgerðalitla ríkisstjórn gera nánast ekki neitt nema að eyða öllu púðrinu í Icesave og ESB ruglið.

Á þessum átta mánuðum hafa heimilin verið látin afskiptalaus og margir fengið óblíðar viðtökur hjá lánastofnunum og nánast sagt að éta það sem úti frýs.

Það vita allir að skera þurfi burt fituna af ríkisbákninu. 

Þá er bara að vinda sér í verkin.

Vonandi verður það gert á manneskjulegan hátt.


mbl.is Með verulegar áhyggjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nema við förum á fullt að nýta auðlyndir okkar?

Það sjá allir skynsamir menn að það verður langvinn kreppa hér ánæstu árum nema við nýtum tækifærin rétt.

Við eigum nátturuauðlyndir og þær þurfum við að nýta rétt.  

Ég er hræddur um að hugmyndafræði VG mun lengja kreppuna og tek ég þess vegna undir með Íslandsbanka.

En allir geta breyst og vonandi breytist hugmyndafræði VG.

 


mbl.is Spá kreppu hér næstu árin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þögn og drungi yfir heimilum landsins?Hugleiðing.

Þögn og drungi svífur yfir heimilum landsins.

Margir hverjir eru farnir að hugsa um að hætta þessari vitleysu að rembast við að greiða af lánunum.

Húsnæðisverð er í frjálsu falli en höfuðstóll lána heldur áfram að vaxa þótt skilvísir greiðendur borgi stórar fjárhæðir mánaðarlega í þessu rugli. 

Það má lýsa ástandinu þannig að íslensk heimili hafi orðið fyrir hryðjuverkaárás og þeir sem eiga að reyna að hjálpa "stjórnvöld" virðast slétt sama.  Þannig er tilfinning margra landsmanna í garð stjórnvalda í dag þar sem það er ekkert að gerast í málefnum heimilanna.

Það er mjög slæmt að hafa það á tilfinningunni að standa í skilum um hver mánaðarmót sé eins og að kveikja í peningunum þar sem framtíðarstefna stjórnvalda er svo óskýr í málefnum og endurreisn heimilanna.

Það er enginn sem talar kjark til þjóðarinnar.  Forsetinn er ekki lengur sameiningartákn, Jóhanna sést ekki og Steingrímur hræðir fólk með ummælum sínum.

Það sem þarf að gera er að gefa þjóðinni von um framtíðina, von um réttlát þjóðfélag og að hægt verði að lifa hér þokkalegu lífi  í nánustu framtíð.

Enn um sinn mun þjóðin reyna að vera þolinmóð til mánaðarmóta og bíða eftir framtíðarplani stjórnvalda.


Þetta á sér eðlilegar skýringar.

Ég var úti að hlaupa þegar þessi skýstrokkur myndaðist. 

Ég lofa því að hlaupa ekki svona hratt þegar ég fer út að hlaupa á morgun.


mbl.is Skýstrokkur í Ölfusi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi fer að sjást sjáanlegur árangur af rannsókn á hruninu

Gunnar Anderson hefur hingað til virkað á mig sem hreinn og beinn maður.

Það er vonandi að rannsókn á bankahruninu gangi hratt og vel fyrir sig og eitthvað fari að koma í ljós einu ári eftir að bankahrunið átti sér stað.

Síðan birtast okkur alltaf fréttir af ýmsum gjörðum útrásarvíkinga eins og að nú er einn af aðalmönnum gamla Kaupþings að byggja 450 fm villu fyrir kúlulánið sitt sem hann tók út úr Kaupþing banka á sínum tíma.  Á meðan skulum við almenningur svelta til að borga upp skuldirnar fyrir hann og aðra útrásarvíkinga.

Þetta er ekki skemmtileg þjóðfélagsumgjörð sem boðið er upp á hér á Íslandi í dag.

Ég vona að allt verði gert til að hraða rannsóknum á hruninu og við förum að sjá árangur áður en árið er liðið.


mbl.is Mörg dæmi um lögbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á dagskrá eða ekki dagskrá?

Tvær fréttir með stuttu millibili?

Ísland á dagskrá AGS

"Málefni Íslands verða rædd á fundi stjórnar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þann 14. september næstkomandi. Taka átti endurskoðunina fyrir á fundi þann 7. ágúst sl. en því var frestað. Vonir standa til þess að eftir fundinn berist annar hluti 2,1 milljarða Bandaríkjadala láns sjóðsins hingað."

Hin fréttin?

Ekki á dagskrá 14. september

"Málefni Íslands verða ekki tekin fyrir á fundi framkvæmdastjórnar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þann 14. september samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu. Um misskilning er að ræða en enn er vonast til þess að Ísland komist á dagskrá stjórna AGS fyrir mánaðamót."

Ég er farinn að halda að AGS vilji ekkert með okkur hafa. Hollendingar og Brétar virðast stjórna atburðarrásinni og kannski er þeirra markmið er að ganga frá okkur sem þjóð.

Ég tel líklegt að AGS býði eftir fjárlagagerðinni þar sem þeir munu láta álit sitt í ljós og heimti meiri niðurskurð á ríkisútgjöldum.


mbl.is Ekki á dagskrá 14. september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn ríkisbanka og sjá svo til eftir nokkur ár

Ég hef sagt það áður?

Það átti að loka öllum þremur bönkunum eftir hrunið og stofna einn nýjan ríkisbanka.

Það er mjög slæmt fyrir okkur kúnna bankanna að þurfa að hafa viðskipti við þá með óbragð í munni. 


mbl.is Erfitt að starfa undir nafni Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við verðum að aflétta spillingunni úr stjórnsýslunni?

Ísland er mjög spillt land þar sem kunningja og vinarsamfélagið hefur blómstrað undanfarin mörg ár.

Nokkrar fjölskyldur hafa stjórnað landinu og börn þeirra hafa síðan erft kjötkatlanna og jafnvel horft niður á hinn venjulega launaþræl.

Við hinn venjulegi almúgi höfum alltaf þurft að berjast fyrir okkar tilverurétti.  Við höfum látið þessar fjölskyldur sem alltaf hafa fengið sínar skuldir afskrifaðar vegna tengsla við valdhafanna hverju sinni traðka á okkur með skítugum skónum.

Sérstakasta dæmið er þegar Magnús kvótakóngur vildi fá 50 miljarða afskrifaðar eða að Björgúlfur Thór vildi semja við Kaupþingbanka og borga aðeins helming af því sem hann átti að greiða fyrir Landsbankann þótt allir hafi haldið að hann hefði borgað bankann upp fyrir löngu.

Íslansk stjórnsýsla hefur verið og er svo spillt að manni verður ómótt.  

Nú er fjórða valdið komið til sögunar og við fólkið sem tjáum okkur undir nafni, segjum stopp?  Hingað og ekki lengra.

Þrotabú í eigu ríkisins eru skömmtuð til fárra útvalinna manna án auglýsinga og sama fólkið lifir gósin lífi þótt traðkað sé stanslaust á launaþrælum ríkisins.

Nú þegar ríkið á allt þá þarf að auglýsa allar eignir til sölu og gefa nýju fólki tækifæri á að gera betur heldur en þeir sem settu allt í þrot.(eins og gerðistmeð skóverslanir (Steinars Waage)

Nýja Ísland verður að rísa upp án spillingar.  Jóhanna hin góða kona sem enginn vill ásaka fyrir spillingu þarf að rísa upp og tala við okkur þjóð sína hún má ekki einangra sig svona þótt ég telji að málefnin sem hún þarf að glíma við séu henni erfið.

Ég mun um stundarsakir berjast með þeim sem vilja berjast fyrir réttlæti.  Ef spillingin vinnur á réttlætinu mun ég ásamt mörg þúsunda íslendinga yfirgefa klakann og fá mér eitthvað að gera í öðru landi.  Það skal viðurkennast að ég hef undirbúið plan B lengi.

En ég skora á alla íslendinga að doka við og berjast fyrir tilverurétti sínum.

Berjumst gegn spillingunni?  Berjumst fyrir sanngjörnu og heiðarlegu þjóðfélagi.


Dagar Browns í embætti senn liðnir.

Íslandsóvinurinn Brown fer vonandi að fara frá völdum,

Vonandi tekur þá einhver góðviljaður við sem hefur skilning á aðstæðum.

Þetta leynimakk mynnir mig stundum á leynimakk þegar tveir stjórnmálamenn ákváðu fyrir hönd íslensku þjóðarinnar að Ísland væri orðið þátttakandi í stríði við Íraka. 

Síðan fór á stað einhver hringlunarháttur og allir urðu tvísaga í málinu.

Ég fagna því hvað fjórða valdið er að verða öflugt og stjórnmálamenn eiga að taka mark á því.


mbl.is Brown kúventi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóðugur niðurskurður á næsta ári.

Fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár verður kynnt eftir um mánuð.

Skorið verður niður hjá ríkisstofnunum um 35,4 milljarða og 28 milljörðum á að ná með hækkunum á tekjuskatti, virðisaukaskatti, erfðaskatti og eignaskatti svo dæmi séu tekin.

Í bóta- og styrkjakerfinu verður skorið niður um ríflega 11 milljarða á næsta ári, en til þessa kerfis heyra almannatryggingarnar, atvinnuleysisbætur, vaxtabætur,barnabætur og aðrir ýmiskonar styrkir t.d. til menningarmála.

Alls þarf að finna um 63 miljarða í ríkiskassann.

Síðan á að halda blóðugum niðurskurðarhnífnum áfram á lofti til ársins 2013 og skera 10-30 miljarða ár hvert.

Síðan þegar þessi ósköp eru búin þá hefst þrautaganga nr 2 að greiða icesave reikninginn.

Í stuttri samantekt er hægt að segja að við íslendingar sem ætlum að taka þátt í þessu þjóðfélagi verðum blóðugir upp fyrir haus og spennandi að sjá hvort við komumst alla leið á leiðarenda árið 2023 þegar við greiðum loka greiðsluna af icesave reikningnum.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband