Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Útrásarvíkingarnir gerðu hryðjuverkaárás á Ísland.

Látum á það reyna./

Það vita allir hvað ég meina./

Ekki láta spillinguna leyna./

Stjórnvöld eiga að láta allt greina./

 

Að koma þjóðinni í krot./

Er mannsálin orðið brot./

Heimilin fara í þrot./

Ég barinn í rot,/

 

Íslendingar  munu berjast./

Þótt ekkert mun semjast./

AGS mun gremjast./

Íslendingar sáttir við að kremjast./

 

Það á ekki að láta sig kúga./

Þótt stjórnvöld reyni að okkur ljúga./

Bréta tengslin á að rjúfa./

Læt aldrei taka mig og sjúga./

 

Nú risum við upp./

Útrásarvíkingum skal rutt./

Ég vil ekki burt./

Enda kannski kjurt./

 

 

 


Það má ekki uppræta spillinguna? Jóni Jósef sparkað út úr sinni vinnu.

Ég hef í höndunum bréf frá Jóni Jósefi þar sem hann lýsir  skoðun sinni á uppsögn samnings um krosstengslaforits útrásarvíkinganna sem hann gerði við RSK.

Eftir að hann kemur fram í fjölmiðla og kynnir forritið sitt þá er hans margra mánaða striti hent út á haugana.

Hvaða öfl kipptu í spottana?  Hann var orðinn óþægilegur fyrir þessa gjörspiltu stjórnsýslu sem við búum við og vinnu Jóns hent á hauganna eins og drullugu sorpi.

Landsmenn látum þetta ekki gerast og mótmælum nú mun kröftugra gegn þessari gjörspiltu stjórnsýslu sem Jóhanna og Steingrímur eru kosin til að takast á við.

Þessi gjörningur stenst ekki um persónuvend þegar alvarlegur glæpur gegn heillri þjóð hefur verið framinn.

Enn og aftur hrópa ég af mikillri orku!  Spillinguna burt.

Síðan væri gott að íhuga það hvort við stöndum ekki fyrir landssöfnun fyrir Jón Jósef þannig að hann geti unnið áfram að krosstengsla hugbúnaðarvinnu sinni.  Ef Steingrímur og Jóhanna vilja vinna gegn spillingunni í stjórnkerfinu sem er að mestu fortíðarvandi þá styð ég þau með öllu mínu hjarta.

Nú þurfum við landsmenn að hafa hæfa menn í stjórnsýslunni þannig að það gangi eitthvað að hreinsa til.  Trúi ekki öðru en að það verði rannsakað til fullnustu hvers vegna Jóni Jósefi var sparkað út úr sinni vinni.

 


Breiðubökin? Millistéttafólk skal blæða út og þeir eiga að borga allt?

Enn og aftur boða ríkisstjórnarflokkarnir upp á spillingu. Þar sem hin svokölluðu breiðubök sem ekki tóku þátt í góðærinu skulu borga þótt lán þeirra hafi vaxið óheyrilega mikið.

Það er óþolandi að vera með stjórnvöld sem stuðla að misbeitingu valds og að jafnréttisákvæði stjórnarskráinnar skuli ekki látin ríkja.

Það á að gera eitthvað fyrir útvalda en ekki á að vinna fyrir þjóðina.

Í mínum huga munum við með breiðubökin verða gjaldþrota eftir eitt til tvö ár þar sem íbúðarverð lækkar, höfuðstóll lána hækkar og ekki hægt að selja nokkurn skapaðan hlut til að létta á sér.

Ég mun þótt ég geti vissulega borgað í dag taka þátt í átaki hagsmuna heimilanna og ekkert borga í 15 daga.  Á þessum 15 dögum mun ég gera það upp með mér hvort það sé þess virði að taka þátt í þessu fáranlega samfélagi þar sem mér finnst stjórnun landsins síðustu árin eins og stjórn einhvers fábjánaríkis.

Hvað erum við margir í þessu landi sem flokkast undir millitekjufólk,nennum að vinna og sköpum gjaldeyris fyrir landið og svo eigum svo að borga brúsann fyrir allt sukkið?

Ég hef á tilfinningunni að núverandi stjórnvöld séu að búa til kerfi sem er svo létjandi að það fælir alla duglega menn frá vinnu þegar líða fram stundir.

Steingrímur og Jóhanna?  Gangið hægt um gleðinar dyr.  Hagvaxtarvélin verður að fá að ganga. Hún mun örugglega stöðvast ef þið gætið ykkar ekki og styðjið við bakið á duglegu fólki sem nennir að vinna.

Enn um sinn mun ég berjast en frá mínu hjarta held ég að þessi stjórn eigi eftir að fara með allt til anskotans og verðum við íslendingar að vera mjög vakandi á næstu vikum og mánuðum og helst koma þessari stjórn frá.

 

 

 


mbl.is Ræða minnkað vægi verðtryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Steingrímur J? HEIMSKUR MAÐUR?

Nú hefur komið í ljós að áfengissala hefur dregist saman um 21% milli ára.

Neyslumyndun íslendinga er að breytast og þessar ofur skattheimtur Steingríms sem hann fékk í vöggugjöf frá læriföður sínum Ólafi Ragnari forseta Íslands munu ekki skila neinu í ríkiskassa Steingríms.

Með ofurskattheimtu Steingríms og þessara vanmáttugu stjórnar Íslands, blómstarar svartimarkaðurinn í dag þar sem allir reyna að lifa af.  

Steingrímur lifir ekki í sama þjóðfélagi og almúginn í þessu landi.  Hann hefur verið of lengi innan veggja alþingis.  Fengið frítt að borða og fengið útlagðan kostnað borgaðan.

Nú þarf Steingrímur að gera það upp við sig hvort hann ætli að stuðla að stórfeldri svartabraskvæðingu eða vill hann að hagvaxtarhjólin snúist eðlilega í nánustu framtíð.

Með sama áframhaldandi óstjórn fjármálaráðherrans mun ólögleg innanlandsframleiðsla blómstra.  Kaup og sala á matvörum mun blómstra í neðanjarðarhagkerfinu.

Ég hef áhyggjur af Steingrími og bið hann að ganga hægt um gleðinar dyr.  Það muna allir þá tíma þegar lærifaðir Steingríms var fjármálaráðherra?  Þá var engu hlíft enda reis þjóðin ekki upp aftur fyrr en hann fór frá eftir mikið tjón hjá hinum almenna launaþræli.

Ég skora á Steingrím að ganga hægt um gleðinar dyr og ígrunda allar skattahækkanir þannig að þær gefa raunverulega eitthvað í ríkiskassan

.

 


Berjumst á móti því að mannkynið verði allt of feitt.

Ég er íþróttafíkill.

Ég var ágætur íþróttamaður á yngri árum og æfði grimmt.

Ég fór mjög ungur á sjóinn og æfði íþróttir þegar ég gat.

Síðan fór maður að hægja á hreyfingunni og horfa á íþróttir í imbakassannum.

Árin liðu, aukakílóunum fjölgaði hægt og þétt.

Á tæpum tuttugu árum höfðu kílóunum fjölgað um 30 kg.

Á milli reyndi maður allt til að losa um kg en ekkert gekk.

Reynslan skapar manninn og ég bjó til mitt eigið æfingarprógramm.

110 Kg maðurinn var loksins tilbúinn með sinn eiginn þjálfara.

Ég las um allt milli himins og jarðar, um mataræði og hreyfingu.

Loksins var hann tilbúinn.

Í byrjun gat hann vart hreyft sig.

Hann tók hálftíma göngutúra á dag móður og másandi.

Fljótlega lengdi hann göngutúrana í klukkutíma á dag.

Síðan var gengið og hlaupið á milli ljósastaura.

Alltaf var hugsað með aukningu á tempói.

Ég tók þátt í hálf maraþoni í vor á fínum tíma fyrir byrjenda 1.48

Ég hef misst 26 kg og er 85 kg í dag og ágætlega massaður

Ég borða allt en sleppi kartöflum þar sem kartöflur eru fitusprengja og skrítið að heilsuverndarstofnun banni ekki kartöflur?

Ég skora á fólk að fara ekki í megrun heldur að breyta um lífsstíl. 

Líkaminn heimtar hreyfingu.

Ég er tilbúinn að aðstoða alla þá sem vilja losa við þessi umfram kg.

En það á enginn að gera neitt í sínum málum fyrr en andlegi þátturinn er tilbúinn.

Það tók mig nokkra mánaða undirbúning að leggja á stað.

Hálfkák í ræktinni skilar engu en ræktin er góð fyrir fólk sem er andlega tilbúið.

Ég er búinn að finna upp þá aðferð fyrir feitt fólk sem vill verða fitt á innan við ári og virkar aðferðin mín  fínt.

Að lokum? 

Þetta er svo auðvelt þegar þú hefur hugsað um það í nokkurn tíma að þú viljir ná þessum markmiðum.

 

 

 


Ísland er paradís á jörð fyrir afbrot?

Og enn hlægja þessir fjársvikamenn að okkur af því þeir borga ekki neitt með stuðningi stjórnvalda?

Byggja stórhýsi og fá niðurfelt hægri vinstri?  Það væri búið að setja grunað burðardýr milli lás og slá?

 Ekki meira um það í bili


mbl.is Bankahrun líkist máli Madoffs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birkir Jón er þetta svarið?

Við landsmenn bíðum eftir svari hjá formanninum.

Framsóknarflokkurinn hefur litið vel út eftir spillinguna í kjölfar hrunsins en vissulega varð maður að verða fyrir vondbrigðum eins og með allt annað.

Spillingin á okkar landi er svo mikil að ég held að hún hefji allt annað fram fyrir sinn bjálfa flokka.

Það virðist ekkert annað fást til að stjórna okkar landi annað en? Gungur,druslur,þjófar, eða djöfulmenni.

Hvernig á Ísland að geta risið upp með svona fáranlega stjórnsýslu í fararbroddi og landinu er gjörsamlega lokað af upplýsingum um spillinguna?  Samt flæðir hún út daglega þótt engin eftirspurn sé eftir henni.

Eru stjórnvöld sem nú stjórna landinu "kvíslingar " þar sem ekkert er látið uppi og leyndin ríkir upp í haus.

Nú þarf vissulega að gera átak?  Ég tel Jóhönnu óspiltan stjórnmálamann og nú verður að taka til í stjórnsýslunni. og gera mest spiltasta land veraldara að hóflega spiltu landi sem er bráðabirgðalausn.


mbl.is Sammála ákvörðun Magnúsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jónas Kristjánsson, ég og þjóðarspillingin.

Jónas Kristjánsson er sérstakur penni.  Áður fyrr fannst mér hann oft fara yfir strikið og átti ég erfitt með að skilja hans hörðu dóma.

Eftir bankahrunið skil ég Jónas mun betur og skrifar sá maður frá hjartanu og segir frá öllu því sem hjarta hann skynjar á hjartnæmri íslensku.

Ég skrifaði grein í Morgunblaðið árið 2000, grein sem ég kallaði "Hagsmunir þjóðarinnar" þar sem ég varaði við þessu stjórnarfari sem okkur þjóðinni var boðið upp á. Meðal annars skrifaði ég  meðal annars að með sama stjórnarfari yrði tvær þjóðir á íslandi allir þeir 93% sem ættu minna en ekki neitt og þeir 7% sem ættu nánast allt.

Upp á hvern nánast einasta dag koma upp siðferðisleg spillingarmál þar sem stjórnvöld, bankar og lánastofnanir reyna að hygla þeim sem komu okkur á hausin með afskriftum lána eða einhverju öðru sem á að fela fyrir almenningi.  Hinn venjulegi launaþræll með 300-500 þúsundir á mánuði skal borga fyrir ósóman og éta það sem úti frýs.

Það gengur að mínu viti allt of hægt að uppræta þjóðarspillinguna og verður ríkisstjórnin að gera eitthvað í þeim málum þar sem þanþol hins venjulega launaþræls er kominn yfir þolinmæðisþröskuldsins.

Eg mun gefa ríkisstjórninni svigrúm til mánaðamóta?  Ef sama aðgerðaleysi verður áfram þá mun ég og örugglega margir fleyri spíta í og skrifa kjarnyrtari greinar um sinnuleysi stjórnvalda og fleira.

Ég sem íslendingur sem stend í skilum í dag og sé hvað allt er að verða erfiðara?  Stend heilum fæti með öllum heimilum landsins og mun gera það og berjast fyrir því til síðasta dag.

Ef ég tapa eins og flestir allir íslendingar þá leitar fólk að betra lífi annars staðar.

Ég skora á VG að hypja upp um sig buxunar og nýta auðlyndir landsins svo við Íslendingar getum lifað hér í nánustu framtíð.

Ég var aldrei sammála forsetanum eða fjármálaráðherranum enda söng ég aldrei útrásarsönginn heldur fordæmdi ég hann.

Gefum ríkisstjórninni ráðrúm tl mánaðarmóta að bjarga heimilum landsins.

 


Við þurfum erlent fjármagn inn í landið.

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir nauðsynlegt að ráðast í nýjar virkjanir og uppbyggingu orkuiðnaðar til að skapa ný störf.

Annars horfi menn fram áframhaldandi samdrátt og landflótta.

 Hann segist einnig undrandi á neikvæðum viðbrögðum við hugmyndir um kaup erlendra aðila í íslenskum orkufyrirtækjum þegar lánagreiðslur fyrirtækjanna renni þegar úr landi. "

 

Það er alveg á hreinu í mínum huga að við verðum að fá erlenda fjárfesta inn í landið og fjárfesta mikið ef á annað borð á að vera hægt að lifa í okkar landi. Síðan er að fara samningarleiðina, réttlætisleiðina og dreifðu eignarhaldsleiðina og svo frv.

Það verður að forðast þá leið sem við eru á í dag?  Leið stöðnunar.


Flott og gott.

Vonandi verður hægt að halda áfram að segja sanngjarnar fréttir án þess að menn skjálfi yfir því að verða kærðir.

Til hamingju fréttamenn og halda áfram svo að segja fréttir þar sem við almuginn viljum allt upp á borðið og eigum það skilið.


mbl.is Öllum kærum á hendur blaðamönnum vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband