Föstudagur, 28. ágúst 2009
Óbærilegar skattahækkanir framundan.
Hvað þýðir þetta?
Að mínu viti þýðir þetta óbærilegar skattahækkanir framundan?
Vegna aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart heimilum landsins er að styttast í það að meirihluta þjóðarinnar fer að leggjast í greiðsluléti þar sem ekkert er framundan nema áratuga örbrigð.
Á meðan ganga þeir lausir sem bera ábyrgðina og hlægja af okkur sauðsvarta almúganum og finnst það sjálfsagður hlutur að við borgum og borgum.
Sem venjulegur millitekjumaður er ég farinn að finna verulega fyrir buddunni og þau tímamót koma örugglega að margir íslendingar sem geta staðið í skilum í dag geta það ekki eftir nokkra mánuði.
Ég ætla að taka þátt í því með samtökum heimilana um mánaðarmótin október að borga ekkert í 15 daga. Sýna þar með táknræn mótmæli. Vona að sem flestir landsmenn sjái sér fært að taka þátt í þessum táknrænu mótmælum og mótmæla þessu aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart heimilum landsins.
![]() |
Icesave-frumvarp samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 28. ágúst 2009
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes verður að gera sér grein fyrir því að hann er höfundur öfgafrjálshyggjunar þar sem allt átti að selja og koma í pening.
Oft hafði ég á tilfinnungunni að hann væri tilbúinn að einkavæða ömmu sína ef viðunandi verð hefði fengist fyrir hana.
Hannes er höfundur ásamt fleirum að þessari hrikalegu græðgisvæðingu fárra útvaldra sem í upphafi fengu allar þjóðarnytjar gefins en sólunduðu síðan öllu og nú á þjóðin að borga.
Nú berjumst við þjóðin og komum öllum þessum mönnum burt sem bera ábyrgð á hruninu. Ef endurreisnin á að takast þá verða nýir menn að koma að þar sem ekkert annað er í boði.
Ef spillingin á að viðgangast þá munu margir íslendingar gerast pólitískir flóttamenn í öðrum löndum.
Öll þessi spilling byrjaði með kvótakerfinu og síðan vatt hún upp á sig og margir spillingar jöfrar komust á bragðið og gátu ekki stoppað. Þetta varð að dómínó bolta.
Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Ætlar hún virkilega ekki að hreinsa til þar sem allt of margir eru enn að vinna fyrir ríkisstjórnina sem bera einhvera ábyrgð á þessu hruni.
Ég tek upp orð Sverris Stormskers? Ég sem einn af meðlimum þjóðfélagsins mun aldrei sætta mig við það að ég sé tekinn beint í kakóið.
Berjumst íslendingar fyrir nýju íslandi með nýju útrásarfólki sem fer eftir leikreglum markaðarins.
![]() |
Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 27. ágúst 2009
Ég varaði við græðigisvæðingunni árið 2000 með grein í Morgunblaðið.
Árið 1999 og árið 2000 sá ég mig knúinn að skrifa greinar í Morgunblaðið þar sem ég varaði landsmenn við þeirri græðgisvæðingu sem þá var að byrja að tröllríða Íslandi með þeim skelfilegu afleiðingum sem við búum við í dag.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Aðsend grein sem birtist í Morgunblaðinu í febrúar árið 2000.
Ég vil biðja fólk að standa vörð um mannréttindi sín, segir Árelíus Þórðarson, og berjast gegn öllu því óréttlæti sem yfir það er látið ganga.
Varúð
Með sama stjórnarfari er lýðræði þjóðarinnar í stórhættu, hagsmunir auðvaldsins eru látnir ráða á kostnað almúgans í landinu. Þannig stefnir í að eignaskiptingin verði eins og í Brasilíu, þar sem 7% þjóðarinnar eiga allt en 93% þjóðarinnar minna en ekki neitt. Þá geta landsmenn hugsað um það hvort ekki sé betra að flytja til Kanaríeyja. Svo er komið að forseti þjóðarinnar sá ástæðu til að benda á það við setningu Alþingis að hætta væri á, með sömu þróun, að valdið færðist út fyrir sali þingsins.Á dögum Sovétríkjanna var til stjórntæki sem nefndist heilaþvottur, þar sem almúginn var mataður af því sem ráðamenn í Kreml vildu láta heyrast. Oft hef ég haft það á tilfinningunni að verið sé að beita þessu stjórntæki hér á okkar litla Íslandi. Sem dæmi má nefna hina svokölluðu sáttanefnd, hún var kosningaloforð stjórnarflokkanna fyrir síðustu kosningar, sem mataði almenning á því að reyna ætti að ná sátt um stjórn fiskveiða. Þessi nefnd var sjónarspil stjórnarflokkanna til að villa um fyrir almenningi í landinu. Að mínu viti mun aldrei nást sátt úr þessari nefnd.
Samningar
Nú eru samningar á næsta leiti og vil ég skora á landsmenn að styðja við bakið á verkalýðshreyfingunni í komandi kjarasamningum þannig að þjóðarsátt verði um það að lægstu launin hækki mest á kostnað þeirra sem hærri launin hafa og þrælahald vegna láglaunastefnu atvinnurekanda og ríkisstjórnarinnar verði afnumið. Það er ekki líðandi að horfa upp á fólk allt í kring um sig, sem á ekki til hnífs og skeiðar vegna þess að hagsmunir þessa fólks eru látnir víkja fyrir peningaöflunum í landinu. Við verðum að stöðva þá þróun að flutt er inn vinnuafl frá vanþróuðu ríkjunum til að halda launum verkafólks niðri. Hvernig er komið fyrir farmannastéttinni?Að öllu óbreyttu munu mörg heimili leysast upp á næstu árum vegna þess að stór hluti almennings í landinu hefur útborguð laun sem jaðra við fátæktarmörk og getur ekki staðið við skuldbindingar sínar, þar sem skuldir heimilanna hafa meira en tvöfaldast á síðustu árum. Að lokum langar mig að biðja fólk að standa vörð um mannréttindi sín og berjast gegn öllu því óréttlæti sem yfir það er látið ganga. Einnig að standa vörð um lýðræði lands og þjóðar með því að láta skoðanir sínar í ljós.
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009
Saklaus almenningur fékk langmesta höggið, ekki Exista?
Það er ótrúlegt að lesa og hlusta á grátkór útrásavíkinganna sem tjá sig alltaf eins og saklausir fermingardrengir.
Enginn af þessum útrásarvíkingum dettur það einu sinni í hug að biðja þjóðina fyrirgefningar á óhæfuverkum sínum síðustu mánuðum fyrir hrunið. Allt var reynt til að bjarga því sem þá var orðið dauðadæmt og þjóðin á svo að blæða?
Nú er evran komin í 185 kr og heldur áfram að veikjast. Takk fyrir allt Lýður og félagar hvað þið voruð ofsalega klárir kallar.
![]() |
Fengum langmesta höggið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009
Hvað er líkt með Hannesi og Göbels?
Báður voru þeir áróðursmeistarar og náðu að heilaþvo þjóð sína.
Þeir komu þjóð sinni á ískaldan klakann þótt vissulega hafi Göbels verið forhertari.
Eftir áratuga heilaþvott enduðu þjóðir þessara manna algjörlega í rúst.
Báðir tveir hlífðu engum til að koma skoðunum sínum á framfæri á öndveru við þá.
Þótt það kostaði þegar tímar liðu þjóðir þeirra rústir einar.
Þegar þjóðverjar losnuðu við Göbels og alla hans hirð þá var þjóðin fljót að vinna sig upp úr rústunum enda sterk þjóð þegar hún losnaði undan oki heilaþvottarins.
Nú þarf íslenska þjóðin að losna við Hannes og hans trúarbræður, senda þá í útlegð án möguleika á heimkomu til Íslands enda eru íslendingar sterk þjóð án svona manna.
Báðir þessir menn sköðuðu þjóð sína heilmikið þótt vissulega hafi Göbbels verið grimmari morðingi en vissulega er Hannes það ekki.
Nú þarf að keyra allt á fullt til að þeir sem bera ábyrgðina verði látnir bera ábyrgð.
Ég legg til að sjónvarp allra landsmanna fari í söfnun þannig að hægt sé að byggja rammgert fangelsi og refsiramminn verði hækkaður úr 16 árum í 50 ár. eða senda þá sem bera ábyrgðina í útlegð um ókomna tíð.
Þriðjudagur, 25. ágúst 2009
Við borgum ekki fyrir óreiðumennina það er uppgjöf.
Að tveimur vondum kostum tel ég betra að samþykkja ekki að borga ICESAVE reikninginn. Ef við samþykkjum hann mun allt íslenskt efnahagslíf verða rústir einar næstu þrjátíu árin. Hinn kosturinn er að þjóðir heimsins verða í fílu í tvö til þrjú ár en síðan mun allt lagast og fara í eðlilegt horf.
Það sem við eigum að bjóða þeim er?
Að þeir sem bera ábyrgðina borgi í topp með öllu því sem þeir eiga. Ég ásamt þorra þjóðarinnar berum enga ábyrgð á þessari spillingu. Það eru aðrir hundruða manna og væri hægt að ná einhverjum prósentum upp í ICESAVE reikninginn með eignartöku þeirra hundruða manna sem bera ábyrgðina.
Verum sterk þjóð og berjumst gegn óréttlætinu. þessi stjórn Samfylkingar og VG er rúin trausti þar sem hún ætlaði að knýja fram þessar skuldbindingar með handafli. Þetta er í mínum huga prinsipp mál og er þá betra að éta það sem úti frýs tímabundið.
Sveiattan.
![]() |
Funda um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 23. ágúst 2009
Sammála Sigurði G Guðjónssyni um að allar forsendur eru brostnar.
Var almenningur rændur?
Ég segi JÁ.
"Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður segir að lántakendur ættu ekki að greiða krónu meira af lánum sínum en upphaflegar forsendur kváðu á um þegar það var tekið. Lán hafa hækkuð upp úr öllu valdi og forsendur þeirra gjörbreyst frá því þau voru tekin. Telji bankinn sig eiga heimtingu á hærri upphæð geti hann komið og sótt málið fyrir dómi"
Eiga landsmenn ekki að láta reyna á þetta þar sem aðfarir stjórnvalda og fjármálastofnanna eru ekkert annað en svik við okkur almenning í landinu og þá þeirra sem aldrei tóku þátt í þessu útrásarbulli.
Ég ætla ekki að láta þetta yfir mig ganga að hafa verið rændur í skjóli myrkurs og trúi ég ekki öðru en að flestir landsmenn séu á sömu skoðun.
Þetta endar á einn veg ef ekkert er að gert?
Þegar almenningur nennir ekki lengur að berjast með alskonar víxláhrifum að standa í skilum og fer í greiðsluleti.
Til hamingju Sigurður og velkominn í hópinn til bjargar íslenskum fjölskyldum. Flott að horfa fram á veginn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 22. ágúst 2009
Ísland er spiltasta land í vestur Evrópu.
Ísland sem var eitt sinn MINNST spiltasta land vestur evrópu EN er í dag frá mínu sjónarhorni séð spiltasta land græðgi og siðferðisleysi síðustu tíu ára í evrópu.
Er í startholunum að flytja burt ef ríkisstjórnin ætlar sér aðeins að slá upp tjaldborg í staðin fyrir skjaldborg fyrir heimilin í landinu.
RÍKISSTJÓRN íSLANDS VERÐUR AÐ GERA SÉR GREIN FYRIR ÞVÍ AÐ HEIMILUM BLÆÐIR HÆGT ÚT.
Heimilin blæða hægt út eins og maður í andarslitum. Nú er nóg komið af ICESAVE eða ESB nú er komið að því að bjarga heimilum landsins. Ef ríkisstjórnin vill ekki bjarga heimilinum þá verður hún að fara frá strax eða að við íslendingar neyðumst að flytja burt frá rústum landsins.
Ég mun aldrei sætta mig við það að borga ICESAVE fyrir óreiðumennina. ALDREI, ALDREI .
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.8.2009 kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 6. ágúst 2009
Það er ekkert traust á íslenskum bönkum.
Í mínum huga er ekkert traust á íslenskum bönkum. Það er ekkert traust þegar ekki er farið í það að ryksuga almennilega út og gera allt snyrtilegt og nýtt.
Það er ekkert traust þegar leyna á fílunni og sóðaskapnum hvað Glitni og Landsbankann varðar.
Það er erfitt að fara eitthvað? Það er sama hvert horft er? Nauðugir þurfa landsmenn að eiga viðskipti við mafíu meðan ekki er almennilega tekið til svo tekið sé eftir því.
Það verður að fá allt upp á borðið. senda út lánabók Glitnis og Landbankans fyrir hrunið og hlífa þar með nýjum viðskiptavinum.
Að lokum.
Ótrúlegt að bankastjórinn hafi ekki tekið ákvörðun um lögbann í samráði við stjórnina? Hver er staða hans í dag? Nýtur hann traust hjá viðskiptavinum Kaupþings?
![]() |
Stjórn Kaupþings harmar skaðann af lögbanninu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 4. ágúst 2009
Lánabækur Landsbankans og Glitnis upp á borðið.
![]() |
Aukin upplýsingaskylda banka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |