Geir stóð sig vel í dag. Betra að fá landsmenn með sér í lið.

Ég hef gagnrýnt mjög aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar allt þetta ár og ótrúlegt til þess að vita að ríkisstjórnin vissi ekki neitt um stöðu fjármálafyrirtækjanna.

Miðað við allt sem á undan er gengið þá stóð Geir sig vel og verðum við öll að leggjast á eitt og koma okkur úr þessum vanda.

Í nánustu framtíð verða ríkisstjórnir Íslands að passa upp á það að fjárglæpamenn komi landinu aldrei í sömu stöðu aftur.  Þótt vandinn sé víða í heiminum þá er hann hvergi eins og hér á fróni.

Vona að hænufetið verði hér eftir uppá við hjá íslensku þjóðinni.


mbl.is Verndum hagsmuni almennings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband