Laugardagur, 17. maí 2008
Álver í Helguvík mun bjarga íslensku þjóðlífi frá hrunadansi?
Nú eru reyknesingar komnir í gírinn og byrjað skal á fullu að vinna við uppbyggingu álvers í Helguvík sem á að hefja starfsemi sína árið 2010.
Tímasetningin á byggingu álversins er góð þar sem íslenskt efnahagslíf er að stefna mjög langt í dífu. Þessi framkvæmd mun lágmarka skaðan og efnahag fólks.
Til hamingju reyknesingar sem tóku gullið frá okkur hafnfirðingum.
Ég játa það að það er mjög skrítið að búa í Hafnarfirði og skil ég oft ekki þá leið sem stjórna bænum eru að fara?
Enda er óþolandi að þurfa að borga tug þúsunda í auka skatta á hverju ári sem segir að bæjarfélagið er á barmi.............................?
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Spaugilegt, Vefurinn, Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Efnahagslíf þjóða gengur í gegnum sveiflur... sbr hagsveiflur
Þannig að í hvert skipti sem við lendum í niðursveiflu að þá er komin afsökun til að byggja nýtt álver og virkja.
Mér sýnist í fjarlægri framtíð að þá muni öll okkar fallvötn verða fullnýtt fyrir þungaiðnað (sambærilegan og Sovétríkin löggðu þunga áhersu á) ef virkja á í hverri niðursveifluni.
það er áhættusamt að mínu mati sérstaklega í ljósi þess að viðvarandi orkuskortur gæti orðið í fjarlægri framtíð.
Í DAG búum við svo vel að hafa mikla orku í formi fallvatna og jarðvarma.
Hvaða stefnu viljum við taka?
ps ég er engin sérstakur umhverfissinni
gfs (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 01:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.