Íslensku bankarnir þróttmiklir og eiginfjárstaða viðunandi. Á kosnað almennings

Enda borga landsmenn 25% vexti af yfirdráttalánum sínum. 15- 20% af húsnæðisstjórnarlánum sínum og svo frv.

Hvaða þjóð þolir svona okurvexti til lengdar?

Er ekki stjórnun Seðlabankanns kol röng og er ekki komin tími til að finna nýja leiðir?

Ég hvatti hinn ágæta forsætisráðherra í síðustu bloggfærslu að hífa upp um sig belti og axlabönd.  Miðað við hádegisviðtalið í dag virðist hann og hans ríkisstjórn vera með buxurnar á hælunum.

Finnum saman leiðir að þjóðarsátt?  Ólafur F, Geir og Ingibjörg það má ekki ögra þjóðinni, 

Notið næstu daga til þingloka og vinnið í öllum þeim stærstu réttlætismálum sem snúa að þjóðinni og förum svo öll saman í nýja þjóðarsátt.

Manni líður einhvern´veginn þannig að Island er Mattadorspil þar sem allir tapa nema einn.

 


mbl.is Reynir á viðnámsþrótt bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband