Fimmtudagur, 8. maí 2008
það á ekki að hugsa um Sundabraut núna?
Bensínlíterinn er að hækka og verður líklegast kominn á þriðja hundrað krónur eftir einhverja mánuði. Ríkið og borg á að draga saman á þessum tímapúnkti og sýna aðhald. Það besta fyrir þjóðina væri að hefja framkvæmdir í Helguvík eða á Bakka við Húsavík.
Hægja verður á öllum opinberum framkvæmdum og líka við hið svokallaða tónlistarhús.
Ráðamenn verða að hætta að ögra þjóðinni þannig að þjóðarsátt náist um leiðir í efnahagsmálum, þá á ég sérstaklega við eftirlaun ráðamanna og mannréttindamálið sem snýr að sjómönnum.
Síðan skora ég á Geir að hífa upp um sig belti og axlarbönd og fara að koma með eitthvað sem snýr að bjartsýnni þjóðarinnar í efnahagsmálum
Opinn fundur um Sundabraut í Ráðhúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Vefurinn, Viðskipti og fjármál, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 02:51 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.