Eignabruni landsmanna á ofsa ferð.

Rétt er það Steingrímur að eignarbruninn er allur að skýrast.

Eignamyndun landsmanna er að brenna upp og verður enginn eftir tvö ár hjá 93% þjóðarinnar.

Nú fékk ég bréf frá lífeyrissjóðnum mínum í dag þar sem réttindin eru niðurgíruð um tíu prósent.  Sem þíðir að peningareign undirritaðs hafi brunnið upp um ca 1500 þúsund krónur.

Nú eru boðaðar áframhaldandi brennur og skal brenna það litla sem landsmenn eiga eftir með ofsafengnum skattahækkunum á næsta ári til handa einstaklingum upp á þrjátíu og átta prósent.

Það á að brenna upp allar eigur fólks þar til ekkert verður eftir og húsnæðiseigur landsmanna verður breytt í húsnæðis í eigu ríkisins.  Djöfull hljóta þeir sem aðhyllast kenningar kommanistans að kætast um þessar mundir.

Allir skulu vera undir sama hatti og þjóðfélagið drepið niður.  frumkvæði einstaklingsins skal drepið niður í trog.  Ríkisbáknið skal óskorið og enginn fjandsamleg atvinnustarfsemi skal upp byggjast sem ekki er þóknarleg kommanistastjórn Íslands.

Þetta er ekki gæfuleg framtíðarsýn sem við landsmenn búum við með þessa fugla við stjórn landsins.

Skítt með landsmenn allt fyrir ICESAVE 


mbl.is Málin að komast á lokastig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband