Færsla fyrir útrásarvíkinga þegar búið verður að frysta eigur þeirra?

Ef þið hefðuð lagt 100.000 krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu ári síðan væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur.

Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur.

Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500 kall eftir.

Hefði peningurinn hins vegar verið notaður til að kaupa nokkra kassa af Thule-bjór fyrir einu ári síðan þá hefði verið hægt að drekka hann allan og fara síðan með dósirnar í endurvinnslu og hafa um 21.400 krónur upp úr því.

Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft á næstu dögum og endurvinna!


mbl.is Hrun á Wall Street
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður. Sem landflótta "dani" verð ég að vera sammála

Brynjar Gudmundsson (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 21:06

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Snilld!

Guðmundur Ásgeirsson, 10.10.2008 kl. 00:05

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þetta er sennilega besta pæling sem ég hef lesið um málið.

Villi Asgeirsson, 10.10.2008 kl. 07:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband