Tókst teinóttu mönnunum að koma okkur á hausinn?

Bankakreppa þýðir fleiri fyrirtæki fara á hausinn. 

10- 30% atvinnuleysi.

Hvers vegna létu stjórnvöld þetta viðgangast?  Horfðu á og gerðu ekki neitt.  Gagnrýndu ekki einu sinni kaupréttasamninganna upp á hundruði miljóna eða miljarða fyrir einn einstakling.

Öll þjóðin hefur verið mjög gáttuð á þessu en okkur var sagt að þetta væri eðlilegt þar sem drengirnir í teinóttu jakkafötunum væru svo svakalega klárir.

Ég sé ekki fram á annað en að þetta brjálaði einkavæðingarinnar sé að tröllríða þjóðinni og koma tugum þúsunda landsmanna á hausinn á næstu mánuðum.

Það er kannski kominn tími á að byrja upp á nýtt og þjóðnýta bankanna aftur og taka þá frá mönnunum í teinóttu jakkafötunum.

Eða kannski verður það hlutskipti hins venjulega Íslendings í meðal launaðari vinnu að flýja land eftir betra lífi?

Ég skora á Geir Harða að tala opinskátt við þjóðina og segja henni sannleikann um það hvort framtíð okkar sé að búa við 20- 30 % vexti um ókomna framtíð.

Það hafa allir sem flokkast undir hinn sauðsvarta almúga séð að þetta rugl gat ekki gengið til lengdar.

Ég tel ef íslenska ríkið væri fyrirtæki í minni eigu þá væri ég búinn að reka alla ríkisstjórnina þótt blár sé ég í gegn.


mbl.is Ráðamenn funduðu fram á nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband